 | |  |
|
| |
30 september, 2008
    (6 votes, average: 3.00 out of 5)
Loading ...

Leikstjóri: Richard Schenkman
Handrit: Jerome Bixby
Helstu leikarar: David Lee Smith, Tony Todd, John Billingsley, Ellen Crawford, Annika Peterson, William Katt, Alexis Thorpe og Richard Riehle
Söguþráður: Óundirbúið kveðjupartý fyrir Prófessor John Oldman breytist í dularfullar yfirheyrslur þegar að kennarinn trúir samkennurum sínum fyrir því að hann sé ódauðlegur maður sem að hefur rómað um jörðina í 14.000 ár.
Félagar hans trúa ekki sögunni og halda að Oldman sé að vinna að vísindaskáldsögu og taka því þátt í “leiknum” til að byrja með. En þegar að líður á kvöldið fara þeir að sannfærast um að Oldman sé ekki lengur heill á geði og kalla til sálfræðiprófessor til að komast að því hvað sé satt og hvað sé logið.
Fróðleiksmolar: Þetta var síðasta mynd handritshöfundarins, Jerome Bixby, áður en hann lést árið 1998.
Persónan sem að Tony Todd leikur, Dan, minnist á það að hann ætli sé að fara heim og horfa á Star Trek. Það vill þannig til að Tony Todd kom fram í yfir hálfri tylft af Star Trek þáttum á síðustu 18 árum eða svo.
3 ágúst, 2008
    (5 votes, average: 4.00 out of 5)
Loading ...
Leikstjóri: Christopher Nolan
Handrit: Jonathan Nolan & Christopher Nolan
Helstu leikarar: Christian Bale, Heath Ledger, Aaron Eckhart, Michael Caine, Maggie Gyllenhaal, Gary Oldman og Morgan Freeman
Söguþráður: eitt skipti fyrir öll. Þetta virðist vera að ganga vel hjá þeim en fljótlega mæta þeir glæpamanni á uppleið sem kallaður er The Joker. Hann ýtir Gotham að barmi stjórnleysis og neyðir Batman æ nær línunni sem skiluður að hetju og glæpamann.
Fróðleiksmolar: Sem smá grín var einn Batman búningurinn útbúinn með geirvörtum, eins og í Batman & Robin. Christian Bale var sýndur hann sem hinn raunverulegi Batman búningur en hann vissi strax að þetta var bara grín þar sem að hann hafði séð myndir úr hönnunarferlinu á undirbúningstíma myndarinnar. Hann sat fyrir í nokkrum auglýsingarmyndum í geirvörtubúningnum.
Þetta er fyrsta Batman myndin sem er ekki með “Batman” í titlinum.
Til að undirbúa sig fyrir hlutverk Jokers bjó Heath Ledger einn í hótelherbergi í mánuð, mótandi geðveiki karaktersins, líkamlegt atgervi hans og rödd (það síðastnefnda fannst honum erfiðast að ná). Hann hélt dagbók þar sem að hann skrifaði niður hugsanir og tilfinningar Jokersins til að styðjast við þegar hann var að leika. Einnig las hann teiknimyndasögurnar “Batman: The Killing Joke” og “Arkham Asylum: A Serious Hous on Serious Earth”. Ledger sótti einnig áhrif í Alex úr A Clockwork Orange og Sid Vicious.
SPOILER: Heath Leadger spann það þegar að hann byrjaði að klappa á hæðnislegan og kaldhæðinn hátt í fangelsisklefanum þegar að Gordon er hækkaður í tign. Klappið var ekki í handritinu en Christopher Nolan hvatti tökuliðið til að halda áfram að taka og senan var síðan notuð í myndinni.
Tilvitnanir: See, I’m a man of simple tastes. I like gunpowder…and dynamite…and gasoline! Do you know what all of these things have in common? They’re cheap! (The Joker)
18 júní, 2008
    (4 votes, average: 3.00 out of 5)
Loading ...
Leikstjóri: Rob Minkoff
Handrit: John Fusco
Helstu leikarar: Jet Li, Michael Angarano, Jackie Chan, Yifei Liu, Collin Chou og Bingbing Li
Söguþráður: Amerískur unglingur sem að er með Hong Kong og Kung-fu myndir á heilanum gerir ótrúlega uppgötvun í búð í Kínahverfinu er hann finnur hið þjóðsagnarkenda vopn kínverska stríðsmannsins, Monkey King. Með hinn forna grip í hönd ferðast táningurinn óvænt aftur í tímann til Kína fornaldanna þar sem að hann tekur höndum saman með hópi stríðsmanna og fara þeir af stað í hina hættumiklu för í leit að fangelsi Apakóngsins.
Fróðleiksmolar: Þetta er fyrsta myndin sem að meistarar bardagalistanna, Jet Li og Jackie Chan, leika í saman.
Þetta er fyrsta myndin sem Jackie Chan gerir í Hollywood sem hann sér ekki um að hanna bardagaatriðin.
Rétt áður en að Sparrow kastar pílunni að Jade Warlord segir hún “Come Drink With Me” sem er enski titillinn á gamalli mynd með Cheng Pei Pei en í henni sést 12 ára gömlum Jackie Chan bregða fyrir.
17 júní, 2008
    (5 votes, average: 3.20 out of 5)
Loading ...
Leikstjóri: Jonathan King
Handrit: Jonathan King
Helstu leikarar: Nathan Meister, Oliver Driver, Danielle Mason, Peter Feeney, Glenis Levestam og Tammy Davis
Söguþráður: Þegar að Henry var ungur drengur dó faðir hans í smölunarslysi og Henry flýr í kjölfarið til borgarinnar. Nú, árum seinna, snýr hann aftur til að selja bróður sínum sinn helming í býlinu og, að áeggjan sálfræðingsins síns, til að takast á við það sem hann óttast. Bróðir Henrys hefur í fjarveru hans stjórnað fjölskyldufyrirtækinu og er orðinn þekktur fyrir umdeildar erfðafræðitilraunir sínar á dýrunum. Þegar að tveir dýraverndarsinnar sleppa óvart einu af genabreyttu lambi úr tilraunastofunni breytist ferð Henrys fljótlega í hans verstu martröð því bit lambsins breytir kindum og mönnum í grimmar mannætur. Henry og annars dýraverndarsinninn taka höndum saman og saman reyna þau að flýja rollurnar og finna móteitur gegn vírusnum.
Fróðleiksmolar: Rétt áður en að manndrápsrolla ræðst á Mike (Mick Rose) sést hann lesa bókina “The Penguin History of New Zealand” sem að er mjög þekkt bók skrifuð af Dr. Michael King, föður leikstjóra Black Sheep Jonathan King.-
WILHEM ÖSKUR: Á meðan að verið er að ráðast á fólkið sem var við ræðuna hans Angusar reyna tveir menn að komast inn í bíl. Sá sem að er bílstjóramegin er dregin niður af kind og svo öskrar hann.
Maðurinn sem að er dreginn niður af kind á meðan hann reynir að finna lyklana að bílnum sínum er leikstjórinn, Jonathan King.
6 maí, 2008
    (4 votes, average: 3.25 out of 5)
Loading ...
Leikstjóri: Mitchell Lichtenstein
Handrit: Mitchell Lichtenstein
Helstu leikarar: Jess Weixler, John Hensley, Josh Pais, Hale Appleman, Lenny von Dohlen, Vivienne Benesch og Ashley Springer
Söguþráður: Grunnskólaneminn Dawn hefur mikið fyrir því að bæla niður kynferðislegar langanir sína með því að vera virkasti meðlimur skirlífishóp samfélagsins. Ögrandi hegðun vandræðagemlingsins Brad, stjúpbróður hennar,heima fyrir gerir henni þetta ekki auðveldara. Ókunnug líkama sínum kemst hin saklausa Dawn að því, þegar að hún verður fórnarlamb kynferðislegs ofbeldis, að píkan á henni er með tennur. Á meðan að hún berst við að átta sig á því hvað hún er líkamlega einstök upplifir hún bæði kosti og galla þess að vera lifandi dæmi um þjóðsöguna um tenntu píkuna.
Fróðleiksmolar: Myndin mun vera endurgerð á Japönsku myndinni Kiseichuu: kiraa pusshii
Wikipedia grein um Vagina Dentata
5 maí, 2008
Sælir limir,
mér datt í hug að við myndum setja hér inn og skeggræða varðandi þemur sem slíkar fyrir næsta klúbbár sem hefst opinberlega í haust eftir endurkomu Orra að utan.
Tvær þemur hafa komið upp í umræðuna milli okkar Berta allavega en ef einhverjir hafa fleiri hugmyndir þá endilega skella þeim í pottinn og svo umræður þar til niðurstaða fæst um hvað skal taka fyrst o.fl.
Hugmyndirnar eru þessar frá okkur Herberti:
1. Þýskur expressionismi-Nokkrar sérvaldar myndir til að gefa sem gleggsta mynd og besta af þýska expressionisma-skeiðinu. Þurfum að setja saman dagskrána en gæti giskað á ð þetta yrðu ca. 10 myndir. Hæfist allavega á Cabinet of Caligari
2. Byrjunarár Hitcocks-Hugmyndin er sú að taka kallinn í gegn frá því að hann byrjar í þöglu myndunum og enda þegar hann fer til BNA. Við höfum flestir séð oft og margoft margar myndir frá seinni hluta ferils hans en þetta skeið er áhugavert því þarna er hann að stíga sín fyrstu skref og prófa sig áfram með þemur sem koma síðar. Búið að taka margar af myndunum í gegn og ég hef allavega kippt öðrum af þeim tveimur kössum frá sem brúa þetta tímabil að mestu.
Svo ræddum við einhvern tímann um að taka Fritz Lang fyrir að einhverju leyti. Þó var ekki búið að ræða það neitt frekar en umræða vel þegin.
4 maí, 2008
Teeth.
Þá er bara staður og stund næst að ákveða, bendi á að Ísak er með myndina.
Ef Ísak klikkar þá er það The battle for Haditha.
30 apríl, 2008
    (5 votes, average: 4.00 out of 5)
Loading ...

Leikstjóri: Yves Simoneau
Handrit: Daniel Giat & Dee Brown
Helstu leikarar: Aidan Quinn, Adam Beach, August Schellenberg, J.K. Simmons, Eric Schweig, Wes Studi, Colm Feore, Gordon Tootoosis, Fred Dalton Thompson og Anna Paquin
Söguþráður: Bury My Heart at Wounded Knee, sem byrjar strax eftir hinn blóðuga sigur Sioux indíánanna yfir Custer Herforingja við Little Big Horn, segir forsöguna að blóðbaðinu við Wounded Knee Creek frá sjónarhorni þriggja aðila: Charles Eastman (Beach), Ohiyesa, ungum Sioux indíána sem að lærði læknisfræði í Dartmouth og fór svo að vinna sem læknir á verndarsvæðunum þar sem að hann sér með eigin augum að skýrslur um aðlögun indíánanna eru meira og minna lýgi; Sitting Bull (Schellenberg), hinum stollta Lakota höfðingja sem að neitar að beygja sig undir reglur Bandaríkjastjórnar sem að eru til þess fallnar að eyða einkennum fólksins hans, reisn þeirra og hafa af því helgu landi þeirra, hinu gulli hlaðna Black Hills svæði í Dakóta; og öldungardeildarþingmanninum Henry Dawes (Quinn), sem að er einn af arkitektunum að stefnu stjórnarinnar í málefnum indíánanna.
Á meðan að Eastman og kennarinn Elaine Goodale (Paquin) vinna að því að bæta líf indíánanna á verndarsvæðunum reynir Dawes að fá Grant forseta til að koma mannúðlegar fram við indíánanna þvert á vilja hershöfðingjans William Tecumseh Sherman. Von vaknar í hjörtu indíánanna í formi spámannsins Wovoka (Studi) og draugadansinum, hreifingar sem að lofar að enda þjáningu indíánanna undir stjórn hvíta mannsins. Þessi von verður að engu eftir morðið á Sitting Bull og slátruninni á hundruðum indíána, þar á meðal konum og börnum, sem að sjöunda riddaraliðssveitin framdi við Wounded Knee Creek 29. desember, 1890.
Fróðleiksmolar: Myndin var tilnefnd til þriggja Golden Globe verðlauna, Best Mini-Series or Motion Picture Made for Television, Best Performance by an Actor in a Mini-Series or a Motion Picture Made for Television Adam Beach og Best Performance by an Actress in a Supporting Role in a Series, Mini-Series or Motion Picture Made for Television Anna Paquin.
Myndin var tilnefnd til sautján Emmy verðlauna og vann í flokkunum Outstanding Cinematography for a Miniseries or Movie, Outstanding Made for Television Movie, Outstanding Makeup for a Miniseries, Movie or a Special (Non-Prosthetic), Outstanding Single Camera Picture Editing for a Miniseries or a Movie, Outstanding Sound Editing for a Miniseries, Movie or a Special og Outstanding Sound Mixing for a Miniseries or a Movie.
28 apríl, 2008
Bury my heart at Wounded knee. Nú vantar bara stað og stund
22 apríl, 2008
    (4 votes, average: 3.00 out of 5)
Loading ...

Leikstjóri: Satoshi Kon
Handrit: Yasutaka Tsutsui & Seishi Minakami
Helstu leikarar: Megumi Hayashibara, Tôru Furuya, Kôichi Yamadera, Katsunosuke Hori, oru Emori og Akio Ôtsuka
Söguþráður: Þremur vísindamönnum við Geðrannsóknarstofnunina mistekst að tryggja öryggi tækis sem þeir hönnuðu, kallað D.C. Mini, sem gerir fólki kleyft að taka upp og horfa á drauma sína. Þjófurinn notar tækið til þess að komast inn í huga fólks á meðan það vakir og ruglar það með eigin draumum og annara. Við tekur algjör ringulreið. Þríeykið, chiba, Tokita og Shima, með aðstoð lögreglumanns og veru að nafni Paprika reyna að komast að því hver þjófurinn á sama tíma og þau verjast árásum þjófsins inn í þeirra huga. Draumur, raunveruleiki og kvikmyndir renna saman í eitt og persónurnar takast á við spurningarnar um takmörk vísindanna og visku stóra bróður.
Fróðleiksmolar: Barþjónarnir tveir, stóri og litli, á heimasíðu Papriku eru talsettir af leikstjóranum Saotoshi Kon og höfund bókarinnar um Papriku, Yasutaka Tsutsui.
Þegar að Paprika tekur viðtalið við Kogawa í kvikmyndamannsgervinu hans líkist framkoma hans og útlit Akira Kurosawa.
Spoiler: Í lok myndarinnar, þegar að Kogawa Toshimi fer loksins í kvikmyndahús færist myndavélin hægt yfir nokkur kvikmyndaplaköt. Þau sem að sjást best eru fyrir myndirnar þrjár sem að Satoshi Kon gerði á undan þessari: Perfect Blue (1998), Sennen Joyú (2001) og Tokyo Godfathers (2003).
Næsta síða »
|
| |
 | |  |
|
|
|